Maður rændi 10 ára barni sem hann kynntist á Roblox

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. AFP

Karlmaður í Kaliforníu hefur verið handtekinn fyrir að ræna tíu ára gömlu barni sem hann kynntist á miðlunum Roblox og Discord. 

CNN greinir frá því að hinn 27 ára gamli Matthew Macatuno Naval hafi verið handtekinn á sunnudag fyrir að ræna barninu og brjóta á því kynferðislega. 

Lögreglan í Kern-sýslu hóf leit að barninu, sem er tíu ára gömul stúlka frá Kaliforníu, eftir að fjölskylda hennar tilkynnti hvarfið. 

Lögregla uppgötvaði þá að stúlkan hafði verið í samskiptum við Naval á samfélagsmiðlum.

Hún fannst síðdegis á sunnudag um 400 kílómetrum frá heimili sínu og var Naval handtekinn.

Í tilkynningu brýndi lögreglan mikilvægi netöryggis fyrir foreldrum.

Roblox er vinsæll tölvuleikur á meðal barna og ungmenna og Discord er samskiptaforrit. Miðlarnir hörmuðu atvikið og hafa hafið rannsókn á því. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert