Segja 38 látna eftir árás Bandaríkjamanna

Vopnaður maður kannar leifar af bifreið eftir loftárás Bandaríkjamanna í …
Vopnaður maður kannar leifar af bifreið eftir loftárás Bandaríkjamanna í Sanaa í Jemen 7. apríl. AFP/Mohammed Huwais

Fjöldi látinna eftir loftárás Bandaríkjamanna á olíu­höfn­ina Ras Issa í Jemen er nú 38, að sögn upp­reisn­ar­manna Húta í land­inu.

Þar að auki eru fleiri en hundrað særðir, að því er fréttastöð á vegum Húta greinir frá.

Bandaríski herinn sagði að tilgangur árásar þeirra á höfnina væri að stöðva birgðaflutning og fjármögnun til Húta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert