Tveir Bretar voru á meðal fjögurra sem létust er kláfur féll til jarðar nærri Napólí á Ítalíu í gær.
Kláfurinn féll til jarðar í hlíðum Fatio-fjalls eftir að lína slitnaði.
BBC greinir frá því að bresk kona að nafni Margaret Elaine Winn hafi látist í slysinu auk annars Breta sem hefur ekki verið nafngreindur.
Þá lést hinn 59 ára gamli Carmine Parlato sem stýrði kláfnum og ísraelsk kona, Janan Suliman. Bróðir hennar slasaðist alvarlega í slysinu.
Bjarga þurfti 16 manns úr öðrum kláfi sem hékk á sömu línu en var neðar í dalnum.
Að sögn rekstraraðila kláfsins stóðst hann öryggisprófanir fyrir tveimur vikum og hefur því lögregla hafið rannsókn á tildrögum slyssins.