Árásir Rússa hafa haldið áfram í héruðunum Kúrsk og Belgorod þrátt fyrir yfirlýsingu Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta um „páskavopnahlé“. Loftvarnarflautur óma í Kænugarði.
Þessu greindi Volodimír Selenskí Úkraínuforseti frá á X í kvöld.
Vopnahléið tók gildi klukkan 15 í dag að íslenskum tíma og á að vara fram á miðnætti 21. apríl.
„Stríðið heldur áfram og rússneskar árásir einnig,“ sagði í færslu Selenskís.
Hann sagði árásir Rússa halda áfram á nokkrum stöðum á víglínunni, „þrátt fyrir loforð um vopnahlé“.
Þá sagði Selenskí rússneska dróna notaða í árásum, en að á nokkrum svæðum hefði ástandið róast.
Forsætisráðherrann sagði tillögu um 30 daga vopnahlé enn á borðinu en Pútín hafnaði tillögunni í mars.
„Úkraína, ásamt bandamönnum okkar, er tilbúin til þess að færast nær friði á málefnalegan hátt, en það sama verður að gilda um Rússa.“
A report by the Commander-in-Chief.
— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) April 19, 2025
We are documenting the actual situation on all directions. The Kursk and Belgorod regions — Easter statements by Putin did not extend to this territory. Hostilities continue, and Russian strikes persist. Russian artillery can still be heard…