Fimm drukknuðu eftir að risastórar öldur skullu á austurhluta Ástralíu. Tveggja er enn saknað.
BBC greinir frá því að í dag fannst lík karlmanns í sjónum í Nýja-Suður-Wales. Í sama fylki fundust 58 ára sjómaður og tveir aðrir karlmenn í sitthvoru tilfellinu í gær.
Þá drukknaði kona og annar karlmaður hvarf í Viktoríu-fylki.
Viðbragðsaðilar leita einnig manns sem hvarf nærri Sydney.
Jacinta Allan, fylkisstjóri í Viktoríu, sagði að um væri að ræða „hræðilega byrjun“ á páskahelginni.
„Hugur minn er hjá fjölskyldum þeirra sem hafa látið lífið í þessum hryllilegu aðstæðum, og mögulega eru fleiri vondar fréttir á leiðinni.“
Austurhluti Ástralíu hefur þurft að glíma við hættulegar öldur undanfarið.