Hæstiréttur skipar Trump að stöðva brottvísanirnar

Trump vísaði til laga­setn­ing­ar frá 1798 til að vísa meintum …
Trump vísaði til laga­setn­ing­ar frá 1798 til að vísa meintum liðsmönn­um venesú­elska glæpa­geng­is­ins Tren de Aragua (TdA) úr landi. AFP

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur skipað Trump-stjórninni að stöðva tímabundið brottvísanir á meintum venesúelskum glæpamönnum.

Réttindasamtök stefndu ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta eftir að hún vísaði til laga­setn­ing­ar frá 1798 með það fyr­ir stafni að vísa meintum liðsmönn­um venesú­elska glæpa­geng­is­ins Tren de Aragua (TdA) úr landi.

Í morgun skipaði hæstiréttur landsins ríkisstjórninni að vísa ekki fleirum úr landi þar til dómurinn hefur gefið frekari fyrirmæli.

Lagagreinin sem Trump studdist við kveður á um að þegar Bandaríkin eru í stríði eða að verjast innrás megi yfirvöld handsama ​og senda úr landi án málsmeðferðar alla borgara „óvinaþjóðarinnar“ sem hafa náð 14 ára aldri. Sagði Trump Venesúelamennina ógna Bandaríkjamönnum.

Trump hefur sent 261 venesúelskan mann í fangelsi í El Salvador á síðasta rúma mánuði, þar af 137 með vísan til lagagreinarinnar.

Upplýstur um brottvísun á tungumáli sem hann kunni ekki

Útspilið hefur valdið miklum usla í Bandaríkjunum, sem og margt annað sem Trump hefur gert síðan annað kjörtímabil hans hófst á ný.

Brottvísanirnar höfðu verið hindraðar á lægra dómstigi um miðjan mars en Hæstiréttur skar svo úr í byrjun apríl að hann mætti nýta sér lagagreinina til að vísa brott meintum glæpamönnum með vísan til lagagreinarinnar en áréttaði að þeir ættu rétt á að kæra brottvísunina.

Lögsóknin sem leiddi til ákvörðunar dómstólsins í dag varðar Venesúelamenn sem sagðir eru hafa verið teknir í hald í Texasríki og upplýstir um brottvísun sína á ensku, þó einn þeirra hafi aðeins talað spænsku.

American Civil Liberties Union, sem eru stefnendur í málinu, segja enn fremur að mönnunum hafi ekki verið sagt að þeir hefðu rétt á að kæra brottvísunina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert