Vladimír Pútín Rússlandsforseti tilkynnti rétt í þessu að vopnahlé yrði gert á víglínum í Úkraínu í tilefni páska.
„Páskavopnahléið“ nær til „allra hernaðaraðgerða“ Rússa samkvæmt yfirlýsingu Pútíns í ríkissjónvarpi landsins í dag. Hléð eigi að taka gildi kl. 18 í kvöld að staðartíma (15 að íslenskum) og vara fram á miðnætti 21. apríl, annan í páskum.
Óljóst er hvort þetta sé gert í samráði við stjórnvöld í Kænugarði en Úkraínumenn hafa ekki brugðist við yfirlýsingu Rússlandsforseta.
Pútín sagðist aftur á móti búast við því að Úkraínumenn „fylgi okkar fordæmi“.
„Á sama tíma verða okkar hermenn vera tilbúnir að hrekja á brott möguleg brot á vopnahléinu og mögulegar árásir óvinarins,“ bætti Pútín við.
Áður hefur verið stungið upp á svokölluðu páskavopnahléi í Úkraínustríðinu. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, stakk upp á því árið 2022. Úkraínumenn voru þá hlynntir því en Rússar höfnuðu því þar sem þeir sögðu tillöguna „óeinlæga“.
Í gær varaði Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, við því að Bandaríkin myndu gefast upp á að semja um frið milli Úkraínu og Rússlands nema skýr merki sæjust um að vopnahlé gæti náðst.
Í yfirlýsingu Rússa til fjölmiðla segir enn fremur að stjórnvöld í Kreml séu tilbúin í friðarviðræður. Hegðun Úkraínumanna í vopnaléinu muni sýna hvort þeir vilji frið í raun og veru.