Rússneskir borgarar efast um vopnahléið

Frá Moskvu.
Frá Moskvu. AFP

Íbúar Moskvu voru efins um hvort 30 klukkustunda vopnahlé Rússlandsforseta muni leiða til friðar. 

Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seti sagði að Úkraínumenn myndu virða vopnahléið ef Rússar gera það. Á sama tíma sakaði hann rússneska herinn um að binda strax enda á vopnahléið með árásum í lofti og á jörðu niðri.

Í úthverfi Moskvu var lítil trú á því að vopnahléið myndi hafa áhrif á þriggja ára stríðið. 

„Ég hugsa að það muni ekki leiða til neins,“ sagði hin 61 árs gamla Svetlana við AFP-fréttaveituna. 

„Páskavopnahléið mun ekki leiða til neins, af því að Úkraína mun ekki virða samkomulagið,“ sagði hún.

„Þrjú ár eru liðin, svo margir eru særðir, lamaðir, látnir. Og við höfum einungis náð litlu landsvæði í Úkraínu, og það er allt og sumt? Ég skil alls ekki til hvers ef það er allt og sumt,“ sagði Svetlana. 

Vill varanlegan frið 

Hin 85 ára gamla Maria Goranina treysti heldur ekki Úkraínumönnum. 

„Þeir munu endurskipuleggja sig eftir vopnahléið og ráðast aftur á okkur,“ sagði hún. 

„Ég vildi óska þess að við gætum samið um frið við Úkraínu að eilífu.“

Í mars neitaði Pútín að samþykkja til­lögu Banda­ríkj­anna um 30 daga skil­yrðis­laust vopna­hlé. Úkraínumenn höfðu samþykkt tillöguna. 

„Enginn þörf á hléi“

Hinn 58 ára gamli Jegení Pavlov sagðist telja að Rússland ætti ekki að gefa Úkraínumönnum andrými. 

„Ég trúi ekki á Úkraínu. Það verður ekkert vopnahlé, það verða gerðar árásir og svo framvegis,“ sagði hann. 

„Það er engin þörf á hléi. Ef við höldum áfram að þrýsta á, þá þýðir það að við ljúkum þessu af.“

Frá því að innrásin hófst hafa rússnesk yfirvöld bannað alla gagnrýni á stríðsrekstrinum. Þeir sem gagnrýna aðgerðir stjórnvalda eða efast um þær gætu átt von á þriggja ára fangelsi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert