Úkraínuforseti gefur lítið fyrir „páskavopnahlé“ sem Vladimír Pútín Rússlandsforseti lýsti yfir í dag. Hann kallar yfirlýsingu Pútíns „enn aðra tilraun Pútins til að leika sér að mannslífum“.
Pútín lýsti í dag óvænt yfir tveggja daga vopnahléi í Úkraínu í tilefni páskahátíðarinnar. „Páskavopnahléið“ myndi ná til „allra hernaðaraðgerða“ Rússa í innrásarstríði þeirra í Úkraínu.
Rússlandsforseti sagði að hléið tæki gildi kl. 18 að staðartíma í kvöld (15 að íslenskum) og stæði yfir fram á miðnætti þann 21. apríl, annan í páskum.
Selenskí bendir hins vegar á að meðan Pútín hafi lýst yfir vopnahléi hafi sést til rússneskra dróna á himninum yfir Úkraínu.
„[Á] þessu augnabliki heyrast loftvarnarsírenur um Úkraínu. Klukkan 17.15 [14.15 GMT] tókum við eftir rússneskum drónum á himnunum. Úkraínskar loftvarnir og flugherinn eru þegar byrjuð að vinna við að vernda okkur,“ skrifar Selenskí á X.
„Shahed-drónar á himnum okkar sýna raunverulegt viðhorf Pútíns gagnvart páskum og gagnvart mannslífum.“
Í yfirlýsingu Rússa til fjölmiðla sagði enn fremur að stjórnvöld í Kreml séu tilbúin í friðarviðræður. Hegðun Úkraínumanna í vopnaléinu myndi sýna hvort þeir vildu frið í raun og veru.
Rússar hafa dregið lappirnar í friðarviðræðum að undanförnu og neitað að samþykkja tillögu Bandaríkjanna um 30 daga skilyrðislaust vopnahlé.
Í gær varaði Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, við því að Bandaríkin myndu gefast upp á að semja um frið milli Úkraínu og Rússlands nema skýr merki sæjust um að vopnahlé gæti náðst.
Áður hefur verið stungið upp á svokölluðu páskavopnahléi í Úkraínustríðinu. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, stakk upp á því árið 2022. Úkraínumenn voru þá hlynntir því en Rússar höfnuðu því þar sem þeir sögðu tillöguna „óeinlæga“.