Úkraínumenn munu virða vopnahléið sem Vladimír Pútín Rússlandsforseti lýsti yfir í dag. Þetta tilkynnti Volodimír Selenskí Úkraínuforseti á X fyrir stuttu.
„Ef Rússland er nú skyndilega tilbúið til þess að taka þátt í vopnahléi að fullu, þá mun Úkraína bregðast við í samræmi við það og spegla aðgerðir Rússlands.“
Selenskí lagði til að framlengja vopnahléið lengur en fram á miðnætti 20. apríl.
Forsetinn bætti við að rússneskar árásir væru enn í gangi en vopnahléið hófst klukkan 15 í dag á íslenskum tíma.
Selenskí sagði að brugðist yrði við hverri rússneskri árás.
The corresponding proposal for a full and unconditional 30 days ceasefire has gone unanswered by Russia for 39 days. The United States made this proposal, Ukraine responded positively, but Russia ignored it.
— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) April 19, 2025
If Russia is now suddenly ready to truly engage in a format of full and…