„Það er jákvætt að það sé vopnahlé, en það verður þá að vera á þeim forsendum að verið sé að treysta frelsi og fullveldi Úkraínu, ekki bara gert á forsendum Pútíns,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra við mbl.is í tilefni „páskavopnahlés“ Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta.
Vopnahléið hófst klukkan 18 að staðartíma (15 að íslenskum tíma) og á að standa fram til miðnættis 21. apríl, annan í páskum.
Andrí Sibíha utanríkisráðherra Úkraínu sagði að „ekki væri hægt að treysta“ orðum Pútíns.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði yfirlýsinguna „enn aðra tilraun Pútins til að leika sér að mannslífum“.
Þá benti hann á að sést hefði til rússneskra dróna yfir Úkraínu er Rússlandsforseti tilkynnti vopnahléið.
Enn hefur ekkert heyrst frá Bandaríkjastjórn.
Segir Þorgerður Katrín mestu ógnina standa af Pútín, hann sé árásarmaðurinn og mesta ógnin standi af honum, hvort tveggja gagnvart Úkraínu og öðrum ríkjum Evrópu.
„Við vonum bara að þetta sé fyrsta skrefið í átt að mikilvægum, varanlegum og réttlátum friði fyrir Úkraínu,“ segir utanríkisráðherra að lokum um vopnahlé Pútíns.