19 árásir Rússa fyrstu sex tíma vopnahlés

Vladimír Pútín Rússlandsforseti í páskamessu í Moskvu í morgun.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti í páskamessu í Moskvu í morgun. AFP/Ramil Sitikov

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að frá því páskavopnahlé Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta átti að hefjast klukkan 18 í gær, og til miðnættis, hafi verið 387 tilvik af skothríðum Rússa í alls 19 árásum herdeilda þeirra.

Drónar hafi verið notaðir 290 sinnum á tímanum af Rússlandsher.

„Á ýmsum stöðum meðfram víglínunni hafa nú þegar átt sér stað 59 tilvik um rússneska skothríð og fimm árásir rússneskra herdeilda,“ segir Selenskí einnig og vísar í skýrslu Olexanders Sirskís, yfirmanns hersins, frá því klukkan 6 í morgun að staðartíma. 

„Í heildina séð getum við sagt að á páskadagsmorgun sé rússneski herinn að reyna að skapa ímynd af almennu vopnahléi, á meðan hann heldur áfram einangruðum tilraunum til að þoka sér áfram á víglínunni og valda Úkraínu tjóni,“ segir Selenskí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert