Rússar segjast hafa hrundið árásum úkraínskra hersveita í Donetsk-héraði í nótt þrátt fyrir meint páskavopnahlé. Úkraínumenn segja Rússa hafa gert fjölda árása í gærkvöldi eftir að vopnahléið átti að vera hafið.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands sagði á upplýsingafundi að „þrátt fyrir yfirlýsingu um páskavopnahlé gerðu úkraínskir hermenn um nóttina tilraunir til að ráðast á stöður Rússa á svæðunum í kringum Sukhaya Balka og Bogatyr í Donetsk-lýðveldinu, en árásunum var hrundið.“
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að fyrstu sex klukkutímana í páskavopnahléi Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta hafi verið 387 tilvik af skothríðum Rússa í alls 19 árásum herdeilda þeirra.
Pútín tilkynnti að hléið ætti að gilda frá klukkan 15 að íslenskum tíma í gær og vara fram á miðnættis aðfaranótt mánudags. Selenskí sagði að Úkraína myndi virða vopnahléið en aftur á móti svara Rússum ef þeir myndu ráðast á Úkraínu.
Skipun Pútíns um að stöðva allar hernaðaraðgerðir yfir páskahelgina kom eftir margra mánaða viðleitni Donalds Trump Bandaríkjaforseta til að fá Moskvu og Kænugarð til að semja um vopnahlé.
Rússar höfnuðu til dæmis tillögu Bandaríkjanna um 30 daga vopnahlé. Á föstudag hótuðu Bandaríkin að draga sig út úr viðræðunum ef enginn árangur næðist.