Flokkur Farage stærstur í Bretlandi

Nigel Farage segir meðbyrinn vera með Reform.
Nigel Farage segir meðbyrinn vera með Reform. AFP/Ben Stansall

Reform UK, flokkur sem Nigel Farage tók við forystunni í fyrir síðustu kosningar, mælist nú stærsti flokkur Bretlands.

Breska dagblaðið Telegraph greinir frá.

Samkvæmt umfangsmikilli könnun sem More In Common framkvæmdi þá myndi Reform fá 180 þingsæti á sama tíma og Íhaldsflokkurinn myndi fá 165 þingsæti. Reform fékk aðeins fimm þingsæti í þingkosningunum síðasta sumar.

Fylgishrun hjá Verkamannaflokknum

Verkamannaflokkurinn, sem fékk yfirgnæfandi meirihluta þingsæta í kosningum síðasta sumar, myndi fá 165 þingsæti eins og Íhaldsflokkurinn. Íhaldsflokkurinn hefur ekki náð sér á strik frá síðustu kosningum þar sem flokkurinn galt afhroð.

Verkamannaflokkurinn fékk í síðustu kosningum 412 þingsæti og myndi því tapa 247 sætum ef gengið yrði til kosninga í dag.

Enginn flokkur væri nálægt því að fá meirihluta í breska þinginu en til þess þá þarf 326 þingmenn.

Vinsældir Reform hafa aukist verulega frá síðustu kosningum á sama tíma og vinsældir Verkamannaflokksins, sem nú er við stjórnvölinn, hafa hrunið.

Engar þingkosningar í nánd

Það eru þó engar þingkosningar í nánd en eftir 10 daga þá fara fram sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi. Farage vonast nú til þess að að stuðningurinn á landsvísu muni skila sér yfir á sveitarstjórnarstigið.

„Við höfum alla meðbyrinn,“ sagði Farage í viðbrögðum við niðurstöðum könnunarinnar.

Þessi könnun þykir ítarlegri en flestar kannanir þar sem hún greinir hvernig sætin myndu skiptast eftir kjördæmum. Alls voru 16 þúsund manns í úrtakinu. 

Politico tekur saman meðaltal kannana og samkvæmt þeim þá er Reform einnig stærsti flokkur landsins með rúmlega 24% stuðning en Verkamannaflokkurinn fylgir fast á hæla, einnig með um 24% stuðning.

Íhaldsflokkurinn mælist með um 22% stuðning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert