Frans páfi fordæmdi vaxandi gyðingahatur í heiminum sem og hræðilegt mannúðarástand á Gasa í páskaávarpi sínu í dag.
Ekki var ljóst hvort að páfinn myndi láta sjá sig til flytja hið árlega ávarp í ár í ljósi heilsufars hans að undanförnu, en hann lét sjá sig á Péturstorgi fyrir framan tugþúsundir manna.
Aftur á móti las hann sjálfur ekki upp ávarpið en óskaði öllum gleðilegra páska með veikri rödd.
Frans sagði að „vaxandi andúð á gyðingum um allan heim væri áhyggjuefni“ og fordæmdi jafnframt ástandið á Gasa, auk þess sem hann ítrekaði kröfu sína um vopnahlé.
„Ég hugsa til íbúa Gasa, og sérstaklega kristna samfélagsins þar, þar sem þessi hræðilegu átök halda áfram að valda dauða og eyðileggingu og skapa verulegt og hörmulegt mannúðarástand,“ sagði í ávarpinu sem samstarfsmaður hans las upp.
Páfinn hvatti til trúfrelsis og virðingar fyrir skoðunum annarra og sagði að án þess væri friður ekki mögulegur.
„Það getur ekki ríkt friður án trúfrelsis, hugsanafrelsis, tjáningarfrelsis og virðingar fyrir skoðunum annarra.“