„Mistök“ leiddu til þess að 15 bráðaliðar voru drepnir

Myndin er tekin úr myndbandi á síma eins bráðaliðans sem …
Myndin er tekin úr myndbandi á síma eins bráðaliðans sem var drepinn í árásinni. Á henni sjást merkingar á sjúkrabílum rauða hálfmánans. AFP/Palestínski rauði hálfmáninn

Ísraelsher segir að alvarleg mistök og brot á fyrirmælum hafi leitt til þess að fimmtán bráðaliðar voru drepnir á Gasa í mars.

Rannsókn varnarmálaráðuneytis Ísraels á aðgerðinni varpar ljósi á röð mistaka og hefur aðstoðaryfirmaður deildarinnar, sem drap bráðaliðana, verið rekinn. Ástæðan er sögð að hann hafi veitt ófullnægjandi og ónákvæman framburð við skýrslutöku.

Fjórtán bráðaliðar og einn starfsmaður Sameinuðu þjóðanna voru drepnir 23. mars í árás ísraelska hersins á sjúkrabíla frá palestínska Rauða hálfmánanum, bíl Sameinuðu þjóðanna og slökkviliðsbíl.

„Við erum að segja að þetta voru mistök, við teljum samt að þetta séu ekki mistök sem gerð eru daglega,“ sagði hershöfðinginn Yoav Har-Even við blaðamenn spurður að því hvort atvikið endurspeglaði útbreitt vandamál innan ísraelska hersins.

Leggja ekki fram sönnunargögn

Í tilkynningu varnarmálaráðuneytis ísraelska hersins segir að hermennirnir hafi skotið á bílalestina í þeirri trú að þeir stæðu frammi fyrir ógn frá óvinasveitum. Ísraelsher segir rannsóknina líka hafa leitt í ljós að sex af þeim látnu hafi verið liðsmenn Hamas-hryðjuverkasamtakanna.

Hafnar varnarmálaráðuneytið því að um aftökur án dóms og laga væri að ræða.

Í skýrslunni eru ekki lögð fram nein sönnunargögn þess efnis að mennirnir sem létust í árásinni hafi verið liðsmenn Hama, þrátt fyrir að nöfn hinna látnu hefðu verið gerð opinber.

Segir í skýrslu ráðuneytisins að atvikið hafi gerst á hættusvæði samkvæmt skilgreiningu hersins og að liðsforingi á svæðinu hefði skynjað áþreifanlega ógn eftir að bílalestin ók á miklum hraða í átt að þeim.

Skýrar merkingar sjást í myndbandi

Þá er myrkri og lélegu skyggni kennt um að liðsmenn Ísraelshers hafi ekki greint að um sjúkrabíla væri að ræða.

Ísraelsríki sagði upphaflega að hermennirnir hefðu skotið á bílalestina af því hún hefði nálgast á grunsamlegan hátt í myrkrinu, án ljósa. Þá hefði ekki verið tilkynnt eða samþykkt af hernum að þessi bílalest væri þarna á ferð á þessum tíma.

Þær skýringar voru síðar dregnar til baka eftir að myndband fannst í síma eins bráðaliðans sem lést, sem sýndi að kveikt var á neyðarljósum bílanna.

Myndbandið er talið varpa betra ljósi á hvað gerðist 23. …
Myndbandið er talið varpa betra ljósi á hvað gerðist 23. mars. AFP/Palestínski rauði hálfmáninn

Heyrðist fara með sína hinstu bæn

Á myndbandinu sést einnig þegar bílalestin stoppar á veginum þegar skothríðin hófst. Þá sést einnig að bílarnir voru merktir skilmerkilega sem sjúkrabílar og bráðaliðarnir vel merktir sem slíkir.

Myndbandið er um fimm mínútna langt og því má heyra bráðaliðann fara með sína síðustu bæn þegar hermenn Ísraelshers nálgast.

Lík hinna 15 bráðaliða voru grafin í sand og fundust ekki fyrr en viku eftir voðaverkin af því alþjóðlegar stofnanir, þar á meðal Sameinuðu þjóðirnar, komust ekki með öruggum hætti inn á svæðið.

Rauði hálfmáninn og nokkrar aðrar alþjóðlegar stofnanir hafa áður kallað eftir óháðri rannsókn á atvikinu.

Herinn staðfesti einni gí dag að einn bráðaliði væri enn í haldi hersins í kjölfar atviksins. Hann hefur ekki staðfest nafn hans en alþjóðaráð Rauða krossins segir að hann heiti Assad al-Nassasra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert