Tveir fundust skotnir til bana í bæ norður af Frankfurt í gær og umfangsmikil leit stendur nú yfir af hálfu lögreglunnar í Þýskalandi.
Ekkert er vitað um ástæður árásarinnar né hvort að byssumaðurinn hafi verið einn að verki. Líkin fundust í íbúðagötu í bænum Bad Nauheim snemma morguns í gær.
Fjöldi lögreglu- og sérsveitarmanna hafa verið sendir á vettvang ásamt þyrlu til að hafa uppi á gerandanum eða gerendunum
„Samkvæmt núverandi upplýsingum er engin hætta fyrir íbúa eða aðra,“ sagði lögreglan.
Lögregla og saksóknarar hafa hafið rannsókn á málinu.
Bad Nauheim er 25 kílómetrum norður af Frankfurt og þar búa um 33.000 manns. Bærinn er þekktur fyrir að hafa verið staðurinn þar sem Elvis Presley gegndi herskyldu sinni fyrir Bandaríkin á árunum 1958 til 1960 og þar kynntist hann einnig framtíðarkonu sinni, Priscillu Presley.