Frans páfi er látinn

Frans páfi á Péturstorgi 16. nóvember 2016.
Frans páfi á Péturstorgi 16. nóvember 2016. AFP/Alberto Pizzoli

Frans páfi lést í morgun, 88 ára að aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vatíkaninu.

„Kæru bræður og systur. Með mikilli sorg verð ég að tilkynna andlát heilags föður okkar Frans,“ sagði kardínálinn Kevin Farrell í yfirlýsingunni sem Vatíkanið birti á Telegram-rás sinni.

„Í morgun klukkan 7.35 [5.35 að íslenskum tíma] sneri Frans biskup Rómar aftur í hús föðurins,“ sagði Farrell.

Frans páfi við Péturstorg í gær.
Frans páfi við Péturstorg í gær. AFP

Flutti ekki sjálfur ávarpið

Frans páfi for­dæmdi vax­andi gyðinga­hat­ur í heim­in­um sem og hræðilegt mannúðarástand á Gasa í páska­ávarpi sínu í gær.

Ekki var ljóst hvort hann myndi láta sjá sig flytja hið ár­lega ávarp í ár í ljósi heilsu­fars hans en hann kom fram á Pét­urs­torgi fyr­ir fram­an tugþúsund­ir manna.

Aft­ur á móti las hann sjálf­ur ekki upp ávarpið en óskaði öll­um gleðilegra páska með veikri röddu

Frans dvaldi í 38 daga á sjúkrahúsi í vetur vegna lungnabólgu en hann var útskrifaður þaðan 23. mars. 

Frans páfi var gjarnan nefndur páfi fólksins.
Frans páfi var gjarnan nefndur páfi fólksins. AFP/Vincenzo Pinto

Eini páfinn frá Suður-Ameríku

Frans páfi var fæddur Jor­ge Bergoglio og var kardí­náli frá Arg­entínu þegar hann var kos­inn páfi kaþólsku kirkj­unn­ar 13. mars 2013 og tók hann sér þá nafnið Frans.

Tók hann þá við embættinu af Benedikt XVI. páfa, sem lýsti því óvænt yfir 11. febrúar sama ár að hann ætlaði að láta af embætti. 

Frans er eini páfinn sem hefur komið frá S-Am­er­íku. Hann var erki­bisk­up í Bu­enos Aires í Arg­entínu frá 1998. Hann varð kardí­náli árið 2001.

Var hann af ít­ölsk­um ætt­um, en faðir hans flutti frá Ítal­íu til Arg­entínu snemma á síðustu öld.

Frans var einn af þeim sem komu sterk­lega til greina sem eft­ir­maður Jó­hann­es­ar Páls II. árið 2005. Þá var Joseph Ratz­in­ger fyr­ir val­inu.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert