Hvað gerist næst í Vatíkaninu?

138 kardínálar kaþólsku kirkjunnar eru undir 80 ára aldri og …
138 kardínálar kaþólsku kirkjunnar eru undir 80 ára aldri og því gjaldgengir til að kjósa í leynilegri kosningu sem mun fara fram í Sixtínsku kapellunni. Er hvítur reykur birtist frá kapellunni er ljóst að einn af þeim hefur verið valinn nýr páfi. AFP

Páfi Frans lést í morgun, 88 ára að aldri, eftir að hafa gegnt embætti andlegs leiðtoga kaþólsku kirkjunnar í 12 ár. Andlát hans setur af stað aldagamalt ferli við val á nýjum páfa.

Frans páfi hafði fyrir andlát sitt breytt hefðbundnu ferli útfarar páfa. Hann óskaði meðal annars eftir því að vera grafinn í annars konar kistu en fyrri páfar. Einnig hafði hann afnumið þá hefð að lík páfans væri sett á upphækkaðan pall í Péturskirkjunni til opinberrar sýningar.

Í stað þess verður syrgjendum boðið að votta virðingu sína á meðan lík hans er í kistunni, með lokið fjarlægt.

Að auki verður Frans páfi fyrsti páfinn í rúma öld sem verður grafinn utan Vatíkansins – í basilíku heilagrar Maríu í Róm.

Kosning nýs páfa gæti tekið nokkurn tíma

Val á nýjum páfa fer fram innan kardínálaráðsins – hóps æðstu embættismanna kirkjunnar.

138 kardínálar kaþólsku kirkjunnar eru undir 80 ára aldri og því gjaldgengir til að kjósa í leynilegri kosningu sem mun fara fram í Sixtínsku kapellunni. Þó að þeir sem eru yfir 80 ára geti ekki kosið, geta þeir tekið þátt í umræðum og reynt að hafa áhrif á val á nýjum páfa.

Kosningin getur tekið nokkra daga. Á fyrri öldum stóð kosning jafnvel yfir í vikur eða mánuði, og létust sumir kardínálar á meðan páfavali stóð.

Beðið eftir hvíta reyknum

Framvinda kosninganna er gefin til kynna með reyk frá strompi kapellunnar, sem kemur upp tvisvar á dag þegar kjörseðlar kardínálanna eru brenndir. Svartur reykur þýðir að engin niðurstaða hefur náðst, en hvítur reykur merkir að nýr páfi hafi verið valinn. Til að nýr páfi verði kjörinn þarf hann að fá tvo þriðju atkvæða.

Eftir að hvíti reykurinn stígur upp birtist nýi páfinn venjulega innan klukkustundar á svölunum sem snúa að Péturstorginu.

Að lokinni kosningu mun nýi páfinn birtast yfir Péturstorgi, og val hans verður tilkynnt af elsta kardínálanum með orðunum „Habemus Papam“, sem þýðir „Við höfum páfa“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert