Rússar hefja loftárásir að nýju

Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Sergei Sobíanin, borgarstjóri Moskvu, í páskamessu …
Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Sergei Sobíanin, borgarstjóri Moskvu, í páskamessu í gær. AFP/Ramil Sitdikov

Rússneski herinn hefur hafið loftárásir á austur- og suðurhluta Úkraínu að nýju eftir páskavopnahléið svokallaða.

Heimili skemmdist og eldur blossaði upp á matsölustað eftir loftárásir Rússa í Dníprópetrovskhéraði en engan sakaði, að sögn Sergí Lísak héraðsstjóra.

Vítalií Kim, héraðsstjóri Míkolaív-héraðs, segir að Rússar hafi hafið loftárásir þar sömuleiðis. 

„Að morgni 21. apríl, um klukkan 4.57, réðst óvinurinn á borgina með flugskeytum, verið er að athuga tegund þeirra. Engin meiðsl eða skemmdir urðu,“ skrifaði Kim í tilkynningu.

Fleiri en 2.000 brot á vopnahlénu

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sakaði Rússa í gær um að hafa framið fleiri en 2.000 brot á páskavopnahléinu, en sagði að engar loftárásaviðvaranir hefðu verið í Úkraínu á meðan vopnahléinu stóð. Lagði hann til að hlé á loftárásum yrði framlengt.

„Engar loftárásaviðvaranir hafa verið í dag,“ sagði hann og lagði til „að hætt yrði öllum árásum með langdrægum drónum og flugskeytum á borgaralega innviði í að minnsta kosti 30 daga.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert