Trump og Melania fara í útför páfa

Melanía og Donald Trump.
Melanía og Donald Trump. AFP/Mandel Ngan

Bandarísku forsetahjónin ætla að mæta í útför Frans páfa. 

Þetta tilkynnti Donald Trump Bandaríkjaforseti fyrir stuttu á samfélagsmiðli sínum Truth Social. 

„Melania og ég ætlum að mæta í jarðarför Frans páfa í Róm. Við hlökkum til að vera viðstödd!“ sagði í færslu Trumps.

Samkvæmt venju fer jarðarförin fram innan fjögurra til sex daga frá andláti páfans. Frans páfi verður síðan fyrsti páfinn í rúma öld sem verður graf­inn utan Vatík­ans­ins – í basilíku heil­agr­ar Maríu í Róm.

Fyrr í dag minntist Trump páfans á miðlinum. „Hvíl í friði Frans páfi! Guð blessi hann og alla sem elskuðu hann!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert