Harvard-háskóli hefur stefnt ríkisstjórn Donalds Trumps sem skar niður öll framlög til skólans á einu bretti í síðustu viku.
Skólinn neitaði að verða við kröfum Trump-stjórnarinnar sem miða að því að hverfa frá stefnu sinni um að taka við nemendum með ólíkan bakgrunn og að hann láti af stefnu sem ali á gyðingaandúð á háskólasvæðinu.
Trump frysti framlög upp á 2,2 milljarða bandaríkjadala til skólans, eða því sem nemur um 280 milljörðum króna, auk þess að hóta því að skólinn myndi ekki lengur njóta skattfrelsis.
Í yfirlýsingu Harrison Fields, talsmanns Hvíta hússins, segir að sá tími sé liðinn sem búrókratar fái yfirborgað með peningum almennings.
„Almannafé eru forréttindi og Harvard getur ekki mætt grundvallarkröfum sem þarf til að njóta þeirra forréttinda,“ segir Fields.
Alan M. Garber, skólastjóri Harvard, hefur sagt að með aðgerðum sínum hefði Trump-stjórnin stefnt rannsóknum á sjúkdómum á borð við alzheimer, krabbameini í ungum börnum og parkinsonsveiki í hættu.
Garber sem sjálfur er af gyðingaættum hefur viðurkennt að gyðingaandúð hafi vaxið á háskólasvæðinu en segir að sett hafi verið á fót sérstök aðgerðarsveit til að taka á vandamálinu.
Fleiri skólum hefur verið hótað niðurskurði ef þeir verða ekki við kröfum Trump-stjórnarinnar. Þannig hafa um milljarðs dollara framlög til Cornell-háskóla og um 510 milljón dollara framlög til Brown verið afturkölluð.
Columbia-háskólinn í New York hefur hins vegar orðið við hluta af kröfum Trump-stjórnarinnar eftir að hann horfði upp á hótun um 400 milljón dollara niðurskurð.