Beint: Lík páfans flutt í Péturskirkju

Kista Frans páfa verður flutt í Péturskirkjuna í dag.
Kista Frans páfa verður flutt í Péturskirkjuna í dag. AFP

Lík Frans páfa verður flutt í Péturskirkju í Vatíkaninu í dag en páfinn lést á öðrum degi páska, 88 ára að aldri.

Lík páfans verður í Péturskirkjunni næstu þrjá daga þar sem almenningur fær tækifæri til að kveðja hann en útför hans verður gerð frá Péturskirkju á laugardaginn klukkan 9 að staðartíma.

Fjölmargir leiðtogar hafa boðað komu sína til Rómar til að verða viðstaddir útförina og þeirra á meðal eru Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Donald Trump Bandaríkjaforseti og Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert