Hver tekur við af Frans páfa?

Ákvörðun um hver tekur við af Frans páfa getur haft mikil áhrif á kaþólsku kirkjuna. Kardínálaráðið mun hittast í fundarherbergi í Sixtínsku kapellunni til að kjósa nýjan páfa en af ýmsum ástæðum lítur út fyrir að ferlið verði opið og ófyrirsjáanlegt.

Um 80% kardínálanna voru skipaðir af Frans páfa sjálfum. Því eru þeir ekki aðeins að kjósa páfa í fyrsta sinn heldur munu bjóða upp á víðtækara, alþjóðlegra sjónarhorn. Í fyrsta skipti í sögunni mun minna en helmingur þeirra sem greiða atkvæði vera evrópskir.

Af þeim ástæðum er erfiðara en nokkru sinni fyrr að spá fyrir um hver verður kosinn næsti páfi. Talið er líklegt að næsti páfi verði frá Afríku, þar sem kaþólska kirkjan fer stækkandi. Ef svo fer verður það í fyrsta skipti í 1.500 ár.

213 af 266 fyrri páfum hafa verið ítalskir

Ítalski kardínálinn Pietro Parolin var utanríkisráðherra Vatíkansins undir Frans páfa og því hans helsti ráðgjafi. Utanríkisráðherrann leiðir einnig rómversku kúríuna, aðalstjórn kaþólsku kirkjunnar.

Parolin gæti því talist fremstur í flokki þar sem hann hefur sinnt starfi varapáfa vel. 

Sumir telja Parolin líklegan til að forgangsraða erindrekstri í stað hreinleika kaþólskra trúarbragða. Gagnrýnendur hans segja það vandamál á meðan stuðningsmenn hans segja það merki um styrk.

Aftur á móti hefur hann verið gagnrýninn á lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra um allan heim en árið 2015 kallaði hann sögulega atkvæðagreiðslu í Írlandi „ósigur fyrir mannkynið“.

Um það bil 213 af 266 fyrri páfum hafa verið ítalskir en nú hefur ekki verið ítalskur páfi í 40 ár.

Um 80% kardínálanna voru skipaðir af Frans páfa sjálfum. Því …
Um 80% kardínálanna voru skipaðir af Frans páfa sjálfum. Því eru þeir ekki aðeins að kjósa páfa í fyrsta sinn heldur munu bjóða upp á víðtækara, alþjóðlegra sjónarhorn. Í fyrsta skipti í sögunni mun minna en helmingur þeirra sem greiða atkvæði vera evrópskir. AFP/Tiziana Fabi

Um 80% Filippseyinga eru kaþólskir

Ítalski kardínállinn Pietro Parolin var utanríkisráðherra Vatíkansins undir Frans páfa …
Ítalski kardínállinn Pietro Parolin var utanríkisráðherra Vatíkansins undir Frans páfa og því hans helsti ráðgjafi. Utanríkisráðherrann leiðir einnig rómversku kúríuna, aðalstjórn kaþólsku kirkjunnar. AFP/Dimitar Dilkoff

Filippseyski kardínálinn Luis Antonio Gokim Tagle hefur mikla reynslu sem virkur leiðtogi í störfum kirkjunnar meðal almennings, ekki einungis sem sérfræðingur eða diplómati fyrir Vatíkanið.

Kirkjan er gríðarlega áhrifamikil á Filippseyjum en um 80% íbúanna eru kaþólskir. Fimm kardínálar í Kardínálaráðinu eru Filippseyskir, sem gæti leitt til umtalsverðs hagsmunahóps, ef þeir styðja allir Tagle.

Tagle er talinn hófsamur innan kaþólsku skilgreiningarinnar og hefur verið kallaður „asíski Frans“, vegna gilda sem hann deildi með Frans páfa, um félagsleg málefni og meðal annars samúð með innflytjendum.

Hann hefur andmælt rétti kvenna til fóstureyðinga og kallað aðgerðina „tegund af morði“ í samræmi við víðtæka afstöðu kirkjunnar um að líf verði við getnað. Hann hefur einnig talað gegn líknardrápi.

Árið 2015, þegar Tagle var erkibiskup í Manila, kallaði hann eftir því að kirkjan myndi endurmeta „alvarlega“ afstöðu sína til hinsegin fólks, fráskilinna og einstæðra mæðra. Sagði hann hörku fyrri tíma hafa valdið varanlegum skaða og orðið til þess að fólk upplifði sig „merkt“ fyrir lífstíð. Hver einstaklingur ætti skilið samúð og virðingu.

„Ég lít á þetta eins og brandara! Þetta er fyndið,“ sagði Tagle fyrir um áratug, um möguleikann á að verða næsti páfin.

„Hver og einn verður að halda sinni sjálfsmynd“

Kardínállinn Fridolin Ambongo Besungu, frá Kongó, hefur verið erkibiskup í Kinshasa í sjö ár og var skipaður kardínáli af Frans páfa.

Hann er íhaldssamur og hefur mótmælt lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra og haldið fram að „sameining einstaklinga af sama kyni sé álitin þversögn við samfélagsleg viðmið og sé í eðli sínu illska“.

Þrátt fyrir að kristnir séu í meirihluta í Kongó, hafa kristnir staðið frammi fyrir dauða og ofsóknum af hendi Íslamska ríkisins og tengdra uppreisnarmanna. Með hliðsjón af því er Ambongo kardínáli talinn harður málsvari kirkjunnar.

Aftur á móti talaði hann fyrir trúarlegri fjölbreytni í viðtali árið 2020:

„Látum mótmælendur vera mótmælendur og múslima vera múslima. Við ætlum að vinna með þeim. En hver og einn verður að halda sinni sjálfsmynd.“

Slík ummæli gætu fengið aðra kardínála til að velta fyrir sér hvort hann tileinki sér trúboð þeirra að fullu - að kaþólikkar vonist til að dreifa orði kirkjunnar um allan heim.

Filippseyski kardínállinn Luis Antonio Gokim Tagle.
Filippseyski kardínállinn Luis Antonio Gokim Tagle. AFP/Ted Aljibe

Segist ekki viss um að nokkur maður stefni á embættið

Kardínállinn Fridolin Ambongo Besungu, frá Kongó, hefur verið erkibiskup í …
Kardínállinn Fridolin Ambongo Besungu, frá Kongó, hefur verið erkibiskup í Kinshasa í sjö ár og var skipaður kardináli af Frans páfa. AFP/Hardy Bope

Fyrsti kardínáli Ghana, Peter Kodwo Appiah Turkson, hefur líkt og Ambongo lýst því yfir að hann hafi ekki áhuga á að verða páfi.

„Ég er ekki viss um að nokkur maður stefni á að verða páfi,“ sagði hann við BBC árið 2013.

Spurður álits hvort líklegt væri að næsti páfinn yrði frá Afríku, með hliðsjón af vexti kirkjunnar í heimsálfunni, sagðist hann telja slíka ákvörðun ekki eiga að byggja á tölfræði, „þess háttar hugsun á það til að flækja málin“.

Turkson er þekktur fyrir orkumikla framkomu sína en hann er fyrrum gítarleikari í fönk hljómsveit.

Líkt og margir kardínálar frá Afríku er Turkson íhaldssamur. Aftur á móti hefur hann mótmælt glæpavæðingu samkynhneigðra sambanda í afrískum löndum. Í viðtali hjá BBC árið 2023, þegar ríkisstjórn Ghana hafði lagt fram frumvarp um harkaleg viðurlög gegn LGBTQ+ fólki, sagði Turkson að hinseginleiki ætti ekki að vera refsiverður.

Árið 2012 var hann sakaður um hræðsluáróður um Íslam, sem hann baðst seinna afsökunar fyrir.

Erkibiskupinn í Búdapest

Fyrsti kardínáll Ghana, Peter Kodwo Appiah Turkson.
Fyrsti kardínáll Ghana, Peter Kodwo Appiah Turkson. AFP/Filippo Monteforte

Kardínálinn Peter Erdo, frá Ungverjalandi, er vinsæll meðal kaþólsku kirkjunnar í Evrópu. Hann er erkibiskup í Búdapest og ólst upp í kaþólskri fjölskyldu á tímum kommúnismans.

Erdo var meðal þeirra sem kusu Frans páfa og forvera hans, Benedikt páfa. Einnig gegndi hann mikilvægu hlutverki við heimsóknir Frans páfa til Ungverjalands, fyrst árið 2021 og aftur árið 2023.

Þegar neyðarástand ríkti í innflytjendastefnu Evrópu árið 2015 sagði Erdo að kirkjan myndi ekki taka við flóttamönnum þar sem það væri svipað mansali.

Fyrrum erki biskup í Mílan

Ítalski kardínálinn Angelo Scola er fyrrum erki biskup í Mílan.

Hann er að gefa út bók í vikunni og skömmu áður en hann var lagður inn á spítala skrifaði Frans páfi formála bókarinnar.

„Dauðinn er ekki endirinn á öllu, heldur upphaf einhvers,“ skrifaði páfinn í formálann og eru orð hans talin sýna væntumþykju hans á Scola.

Erkibiskup í Munich og Freising

Þýski kardínálinn Reinhard Marx er erkibiskup í Munich og Freising og hefur verið ráðgjafi Frans frá því hann varð páfi árið 2013.

Hann hefur talað fyrir breyttu viðhorfi gagnvart samkynhneigðum og trans einstaklingum í kaþólskri kennslu.

Árið 2021 hugðist hann þó segja af sér vegna alvarlegra mistaka við að takast á við kynferðislega misnotkun barna í kaþólsku kirkjunni í Þýskalandi. Afsögn hans var hafnað af Frans páfa.

Fyrir tveimur árum yfirgaf hann svo Kardínálaráðið.

Kardínállinn Peter Erdo, frá Ungverjalandi.
Kardínállinn Peter Erdo, frá Ungverjalandi. AFP/Vatican Media

„Kristur er karlmaður, kirkjan er kvenleg“

Kanadíski kardínálinn Marc Ouellet hefur gegnt mikilvægu hlutverki við að móta framtíð kaþólska stigveldisins.

Ouellet er íhaldssamur en þó með nútímaleg sjónarmið. Hann er sterklega hlynntur því að viðhalda meginreglunni um skírlífi fyrir presta og er andvígur kvenkyns prestum.

Hann hefur þó kallað eftir stærra hlutverki kvenna í rekstri kaþólsku kirkjunnar og segir að „Kristur er karlmaður, kirkjan er kvenleg“.

Þýski kardínállinn Reinhard Marx er erkibiskup í Munich og Freising …
Þýski kardínállinn Reinhard Marx er erkibiskup í Munich og Freising og hefur verið ráðgjafi Frans frá því hann varð páfi árið 2013. AFP/Sven Hoppe

Fyrsti bandaríski páfinn?

Kanadíski kardínállinn Marc Ouellet hefur gegnt mikilvægu hlutverki við að …
Kanadíski kardínállinn Marc Ouellet hefur gegnt mikilvægu hlutverki við að móta framtíð kaþólska stigveldisins. AFP/Filippo Monteforte

Bandaríski kardínálinn Robert Prevost yrði fyrstur Bandaríkjamanna til að verða páfi, yrði hann fyrir valinu.

Prevost, fæddur í Chicago, er talinn hafa marga góða eiginleika fyrir páfadóm. Fyrir tveimur árum valdi Frans páfi Prevost til að koma í stað Ouellet og gaf honum það verkefni að velja næstu kynslóð biskupa.

Hann starfaði í mörg ár sem trúboði í Perú áður en hann var gerður að erkibiskupi þar.

Talið er líklegt að 69 ára að aldri sé hann of ungur fyrir páfadóminn. Tímabil hans sem erkibiskup í Perú var litað af ásökunum um að hylja yfir ásakanir um kynferðislega misnotkun, sem biskupsdæmi hans hefur hafnað.

Yngstur skipaður erki biskup

Kardínálinn Robert Sarah, frá Gíneu, er vinsæll meðal íhaldsmanna í kirkjunni og er þekktur fyrir að halda í hefðir og hefðbundna helgiþjónustu. Hann var oft talinn andvígur umbóta tilhneigingu Frans páfa.

Sarah varð yngsti erkibiskupinn, 34 ára að aldri, þegar hann var skipaður í Gíneu.

Þó hann sé ekki líklegastur fyrir páfadóminn gæti hann fengið sterkan stuðning íhaldssamra kardínála.

Kenndi í Keníu

Kanadíski kardínálinn Michael Czerny hefur komið víða að í rómönsku Ameríku og í Afríku, en hann stofnaði African Jesuit Aids Network og kenndi í Keníu.

Czerny er vinsæll meðal frjálslyndari meðlima kirkjunnar og var talinn náinn Frans páfa.

Þó hann sé álitinn sterkur kostur er talið ólíklegt að kardínálaráðið kjósi annan framsækinn páfa strax á eftir Frans páfa.

Bandaríski kardínállinn Robert Prevost.
Bandaríski kardínállinn Robert Prevost. AFP/Tiziana Fabi

BBC

Kanadíski kardínállinn Michael Czerny hefur komið víða að í rómönsku …
Kanadíski kardínállinn Michael Czerny hefur komið víða að í rómönsku Ameríku og í Afríku, en hann stofnaði African Jesuit Aids Network og kenndi í Keníu. AFP/Alberto Pizzoli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert