Árásarmaðurinn bölvaði „vistmorð“ í stefnuyfirlýsingu

Árás­armaður­inn er 15 ára gam­all nemandi við skólann.
Árás­armaður­inn er 15 ára gam­all nemandi við skólann. AFP

Árásarmaðurinn sem drap samnemanda sinn og særði þrjá til viðbótar í skóla í Frakklandi í dag gaf út stefnuyfirlýsingu skömmu fyrir árásina.

Ein stúlka er lát­in og að minnsta kosti þrír særðir eft­ir hnífstungu í Notre Dame de Tou­tes Ai­des-mennta­skól­an­um í Nan­tes. Skól­inn var rýmd­ur.

Árás­armaður­inn, sem er 15 ára gam­all nemandi við skólann, var hand­tek­inn á vett­vangi eft­ir að hafa verið yfirbugaður af kenn­ara í skól­an­um. 

Ásetningur árásarmannsins er óljós. Le monde greinir frá því að pilturinn hafi gefið út 13 síðna stefnuyfirlýsingu á innri vef skólans þar sem því er lýst hvernig „hnattvæðing“ hafi „umbreytt kerfinu okkar í vél fyrir rotnandi mannverur“.

Í yfirlýsingunni er kallað eftir „lífrænni uppreisn“ svo að „jafnvægi náttúrunnar“ geti endurheimt stöðu sína gegn „hnattvædda vistmorðinu“. Óljóst er hvort hann hafi skrifað yfirlýsinguna sjálfur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert