Einn látinn og þrír særðir eftir hnífstunguárás

Lögreglumenn á vettvangi.
Lögreglumenn á vettvangi. Ljósmynd/X

Einn nemandi er látinn og að minnsta kosti þrír særðir eftir hnífstungu í einkaskóla í vesturhluta Frakklands, að sögn franskra fjölmiðla.

BBC greinir frá. Árásin átti sér stað í Notre-Dame-de-Toutes-Aides-menntaskólanum í Nantes. Árásarmaðurinn, sem er 15 ára gamall, er sagður hafa verið handtekinn á vettvangi eftir að hafa verið yfirbugaður af kennara í skólanum. Skólinn var rýmdur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert