Níu látnir eftir stórfellda eldflaugarárás á Kænugarð

Rússar gerðu stórfellda loftárásir á Kænugarð í nótt.
Rússar gerðu stórfellda loftárásir á Kænugarð í nótt. AFP

Að minnsta kosti níu er látnir og tugir manna eru særðir eftir stórfellda eldflaugaárás á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt.

Þetta er ein mannskæðasta árás Rússa á Kænugarð frá upphafi stríðsins sem hófst fyrir rúmum þremur árum. Staðfest dauðsföll eru níu og þá eru á sjöunda tug særðir, þar á meðal sex börn.

Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, segir á samfélagsmiðlum að árásin sýni að Rússar vilji ekki stöðva stríðið.

Björgunaraðilar að störfum í Kænugarði.
Björgunaraðilar að störfum í Kænugarði. AFP

„Vladímír Pútín Rússlandsforseti sýnir með gjörðum sínum, ekki orðum, að hann virði enga friðarviðleitni og vilji halda stríðinu áfram,“ segir hann.

Þá gagnrýnir utanríkisráðherrann tillögur Pútíns um vopnahlé í skiptum fyrir landsvæði á Krímskaga.

Pútín á enn eftir að svara boði Volodimírs Selenskís Úkraínuforseta  um að stöðva algjörlega loftárásir á borgaraleg skotmörk og hafnaði í síðasta mánuði kröfu Bandaríkjamanna og Úkraínumanna um fullt og skilyrðislaust vopnahlé.

„Pútín sýnir aðeins löngun til að drepa,“ segir Andrii Jermark helsti aðstoðarmaður Selenskís.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert