Segir Rússa hafa notað flugskeyti frá Norður-Kóreu

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti. AFP

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir Rússa hafa notað flugskeyti framleitt í Norður-Kóreu í mannskæðri loftárás á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt. 

Þetta segir forsetinn í færslu á X. 

„Samkvæmt bráðabirgðaupplýsingum notuðu Rússar flugskeyti sem framleitt var í Norður-Kóreu. Unnið er að því að staðfesta allar upplýsingar,“ skrifaði Selenskí. 

„Reynist það rétt að þetta flugskeyti hafi verið framleitt í Norður-Kóreu staðfestir það enn frekar glæpsamlegt eðli sambands Rússlands og Pjongjang [höfuðborg Norður-Kóreu].“

Loftrás Rússa á Kænugarð er ein sú umfangsmesta á úkraínsku höfuðborgina síðan að innrásarstríð Rússa í Úkraínu hófst fyrir rúmum þremur árum. Staðfest dauðsföll eru tólf auk þess sem hátt í hundrað eru særðir, þar af sex börn.

Vladimír HÆTTU!

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lýst mikilli óánægju með Vladimír Pútín Rússlandsforseta vegna árásarinnar og hvetur báða aðila til að samþykkja vopnahlé. 

„Ég er ekki ánægður með árásir Rússa á Kænugarð. Ekki nauðsynlegt og mjög slæm tímasetning. Vladimír HÆTTU! 5000 hermenn á viku eru að deyja. Við skulum klára friðarsamkomulagið,“ skrifaði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert