Selenskí aflýsir fundum í S-Afríku og heldur heim

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti. AFP

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hefur aflýst hluta af dagskrá sinni í Suður-Afríku eftir stórfellda eldflaugaárásir Rússa á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt.

Selenskí greinir frá því á samfélagsmiðlinum X að hann mundi halda heim á leið í dag eftir fund með Cyril Ramaphosa, forseta Suður-Afríku. Upphaflega átti Selenskí að funda með fulltrúum G20-ríkjanna en Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, mun funda með þeim í stað Selenkís.

Í það minnsta níu létust í árásum Rússa á Kænugarð og tugir manna eru særðir.

„Björgunaraðgerðir standa enn yfir og verið er að hreinsa rústir íbúðarhúsa. Á þessari stundu hafa 80 manns særst víðs vegar um Úkraínu. Allir fá þá hjálp sem þeir þurfa,“ skrifar Selenskí í færslu á X.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert