Mangione lýsti sig saklausan

Luigi Mangione.
Luigi Mangione. AFP

Luigi Mangione, sem hefur verið ákærður fyrir morðið á Brian Thompson, forstjóra stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna, lýsti sig saklausan af ákærum alríkisins í dag er hann var leiddur fyrir dóm í New York.

Mangione er ákærður bæði fyrir ríkisdómstól í New York og í alríkisdómstól fyrir morðið. Hann hefur nú lýst sig saklausan í báðum málum, og því verða tvö aðskilin réttarhöld.

Gæti fengið dauðarefsingu

Verði hann sakfelldur fyrir ríkisdómstólnum gæti hann átt yfir höfði sér lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn.

Verði Mangione fundinn sekur fyrir alríkisdómstólnum mun kviðdómur ákvarða hvort mæla eigi með dauðarefsingu.

Dagsetning réttarhalda kynnt í desember

Breska ríkisútvarpið greinir frá því að verjendur Mangiones hafi óskað eftir því að réttarhöld fyrir alríkisdómstólnum fari fram fyrst, þar sem möguleiki er þar á dauðarefsingu, en búið var að ákveða að réttarhöld ríkisdómstólsins yrðu á undan.

Þá tilkynnti dómari málsins réttinum að næsta þinghald yrði í desember og verður þá dagsetning réttarhaldanna kynnt.

Stuðningsmenn Luigis voru mættir fyrir utan dómstólinn í New York …
Stuðningsmenn Luigis voru mættir fyrir utan dómstólinn í New York fyrr í dag. SPENCER PLATT
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert