Segir að Úkraína gæti þurft að gefa eftir land til að ná friði

Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs.
Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs. AFP

Vitali Klitschko, borgarstjóri í Kænugarði, segir að Úkraína gæti þurft að afsala sér land sem hluti af friðsamkomulagi við Rússa, vegna vaxandi þrýstings frá Donald Trump Bandaríkjaforseta um að samþykkja vopnhlé.

„Ein af sviðsmyndunum er að gefa eftir landsvæði. Það er ekki sanngjarnt. En fyrir friðinn, tímabundinn frið, kannski getur það verið lausn, tímabundið,“ segir Klitschko í viðtali við BBC.

Þessum fyrrum heimsmeistari í hnefaleikjum leggur áherslu á að úkraínska þjóðin muni aldrei sætta sig við hernám af Rússum en borgarstjórinn ræddi við BBC nokkrum klukkustundum eftir stórfelldar eldflugaárás á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í gær þar sem 12 létust og á áttunda tug manna særðust.

Klitschko og Volodimír Selenskí Úkraínuforseti eru pólitískir andstæðingar og hefur borgarstjórinn ítrekað sakað Selenskí um að reyna að grafa undan valdi sínu. Klitschko segir að Selenskí gæti neyðst til að grípa til sársaukafullrar lausnar til að ná friði.

Fyrr í vikunni sakaði Donald Trump Selenskí um að skaða friðarviðræðurnar eftir að úkraínski forsetinn útilokaði að viðurkenna yfirráð Rússa á Krímskaga, suðurhluta Úkraínuskaga sem Rússar innlimuðu ólöglega árið 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert