Selenskí: Krímskaginn tilheyrir Úkraínu

Trump sagði fyrr í dag að Selenskí skildi það að …
Trump sagði fyrr í dag að Selenskí skildi það að Krímskaginn yrði áfram undir stjórn Rússa. AFP/Tetiana Szhafarova

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti ítrekar að Krímskaginn sé úkraínskt land en landsvæðið var hernumið af Rússum árið 2014. Bandaríkjaforseti sagði í dag að Krímskaginn yrði áfram undir stjórn Rússa. 

Bandaríkin hafa ekki opinberað smáatriðin í friðartillögum sínum, en hafa meðal annars gefið í skyn að yfirráð Rússa á Krímskaga verði viðurkennd gegn friði.

„Afstaða okkar er óbreytt,“ sagði Selenskí við blaðamenn í Kænugarði þegar hann var spurður um Krímaskagann. „Stjórnarskrá Úkraínu kveður á um að öll tímabundnu herteknu svæðin tilheyri Úkraínu.“

Witkoff fundaði með Pútín

Trump sagði í viðtali við TIME tímaritið í dag:

„Krímskagi mun vera áfram undir stjórn Rússa og Selenskí skilur það.“

Steve Witkoff, er­ind­reki Hvíta húss­ins sem fer fyr­ir samn­inga­nefnd Banda­ríkja­manna, fundaði í dag með Vladimír Pútín í þrjá klukkutíma þar sem mögulegt vopnahlé bar á góma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert