Átta látnir eftir sprengingu

Viðbragðsaðilar eru á staðnum.
Viðbragðsaðilar eru á staðnum. AFP/Mohammad Rasole Moradi/Irna

Átta manns létust og fjölmargir særðust í sprengingu við gámahöfn í borginni Bandar Abbas í Íran í kvöld. 

Í kjölfar sprengingarinnar kviknaði eldur og honum fylgdi mikill reykur. Skólar og skrifstofur í 23 kílómetra fjarlægð frá höfninni munu ekki opna á morgun. 

Talið er að hætta sé á að eldurinn breiðist út og er mikið viðbragð á staðnum. Ekki liggur ljóst fyrir hvað olli sprengingunni.

Átta eru látnir.
Átta eru látnir. AFP/Mohammad Rasole Moradi/Irna

Masoud Pezeshkian, forseti Írans, hefur vottað fjölskyldum fórnarlambanna samúð sína. Hann og Eskandar Momeni innanríkisráðherra munu heimsækja svæðið. Að sögn forsetans særðust 750 manns.

Vinnuvikan í Íran hefst á laugardögum, því voru fjölmargir starfsmenn á svæðinu. Höfnin sem um ræðir heitir Shahid Rajaee, hún er staðsett nálægt Hormuz-sundi þar sem olíuframleiðsla fer fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert