Fjöldi lést er bíl var ekið á mannfjölda í Vancouver

Þrítugur maður hefur verið handtekinn vegna atviksins.
Þrítugur maður hefur verið handtekinn vegna atviksins. AFP

Fjöldi fólks er látinn eftir að bíl var ekið inn í mannfjölda í Vancouver í Kanada í nótt, að sögn yfirvalda. Atvikið átti sér stað á götuhátíð þar sem filippseyskri menningu var fagnað.

Nákvæmur fjöldi fórnarlamba liggur ekki fyrir en lögreglan í Vancouver segir að „fjöldi fólks“ hafi látið lífið og „margir aðrir“ særst eftir að ökumaður hafi „ekið inn í fólksfjölda á götuhátíð“ við Fraser-stræti kl. 20 að staðar tíma (3 að íslenskum tíma).

Þrítugur ökumaður er í varðhaldi vegna málsins að sögn yfirvalda.

„Við veitum frekari upplýsingar eftir því sem rannsókn vindur áfram,“ bætir lögreglan við í færslu á X.

Óstaðfestar ljósmyndir af vettvangi eru í dreifingu á samfélagsmiðlum en þar má sjá illa farna svarta bifreið og fjölda fólks liggjandi á götunni.

Atvikið átti sér stað á Lapu Lapu-hátíðinni í Vancouver, þar sem haldið var upp á filippseyska menningu. Filippseyingar um víða veröld halda upp á hátíðina árlega en Lapu Lapu var nafn frelsishetjunnar sem sigraði Spánverja í orrustunni við Mactan árið 1521.

„Við syrgjum öll með ykkur“

Ken Sim, borgarstjóri Vancouver, segist á X vera sleginn yfir atvikinu. Forsætisráðherra landsins er einnig harmi sleginn.

„Ég er miður mín við að heyra af hræðilega atburðinum á Lapu Lapu-hátíðinni í Vancouver,“ skrifar Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, á X.

„Við syrgjum öll með ykkur,“ bætir ráðherrann við.

Svipuð árás átti nýlega sér stað í New Orleans í Bandaríkjunum í byrjun janúar, þegar 15 létust er maður ók pall­bíl í gegn­um mann­fjölda í Bour­bon-stræti.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert