Kanadamenn kjósa í skugga hryllingsins

Fyrir örfáum mánuðum voru frjálslyndir að tapa í skoðanakönnunum, þar …
Fyrir örfáum mánuðum voru frjálslyndir að tapa í skoðanakönnunum, þar sem þeir mældust 25 prósentustigum fyrir aftan Íhaldsflokkinn. Nú hafa þeir snúið vörn í sókn. AFP

Kanadamenn ganga til kosninga á morgun þar sem búist er við enn öðrum sigri Frjáls­lynda flokks­ins. En líklega mun árás helgarinnar í Vancouver skyggja á kosningarnar. 

Mark Car­ney hafði nýlega tekið við sem for­sæt­is­ráðherra Kan­ada og sem formaður frjálslyndra þegar hann boðaði til ­skyndikosn­ing­a í lok mars.

Þá voru Frjálslyndi flokkurinn og Íhaldsflokkurinn nánast hnífjafnir í könnunum en fram að því virtust íhaldsmenn hafa pálmann í höndunum. Í desember leiddu þeir nefnilega kannanir með 25 prósentustigum. 

En nú þegar Kanadamenn ganga að kjörborðinu eru frjálslyndir búnir að snúa vörn í sókn og hafa aftur náð talsverðri forystu í skoðanakönnunum.

Að meðaltali mælast frjálslyndir með 42,5% fylgi í skoðanakönnunum. Íhaldsflokkurinn, undir forystu Pierre Poilievre, mælist með 38,7% fylgi, samkvæmt samantekt ríkisútvarps Kanada, CBC

Þessar niðurstöður myndu tryggja frjálslyndum hreinan meirihluta á þinginu, 189 sæti. En íhaldsmönnum er spáð 125 sætum. Québec-flokknum, sem vill að Québec-fylki verði sjálfstætt ríki, er spáð um 23 sætum. 

Trump í miðju skotskífunnar

Í byrjun árs sagði Justin Trudeau af sér sem formaður flokksins og forsætisráðherra landsins til níu ára. Og um svipað leyti steig Donald Trump Bandaríkjaforseti aftur inn í Hvíta húsið.

Trump hefur frá upphafi kjörtímabils síns m.a. átt í hótunum við Kanadamenn um að innlima þá sem 51. ríki landsins, en hefur einnig gert þá að sérstöku skotmarki í tollastríði sínu.

Í aðdraganda kosninga virðist því Trump-skuggi vofa yfir öllum kosningamálum og flokksformennirnir í Kanada hafa í auknu mæli skotið að Trump, í von um að sannfæra samlanda sína um að þeir séu rétti kosturinn til að takast á við Bandaríkjaforsetann.

Níu látnir eftir árás

Annar skuggi vofir þó yfir Kanadamönnum í dag. Að minnsta kosti níu eru látn­ir og fleiri særðir eft­ir að bíl var ekið gegn­um mannfjölda á götu­hátíð í Vancou­ver í nótt.

Aðeins einn er grunaður um verknaðinn, þrítug­ur maður sem er nú í varðhaldi. Lög­reglu­yf­ir­völd segj­ast kann­ast við hann en gefa ekki upp hvort hann hafi hreina saka­skrá.

Ásetn­ing­ur meints ger­anda er óljós en lög­regl­an skrifaði á sam­fé­lags­miðla að hún væri „sann­færð“ um að ákeyrsl­an hafi „ekki verið hryðju­verk“. Lög­regl­an hef­ur enn ekki gefið upp hversu marg­ir eru særðir.

Þjóðin er í áfalli eftir atvikið og hafa formenn flokkanna allir vottað fórnarlömbum sína samúð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert