Kjarnorkuvopnunum „miðað á Indland“

Myndir frá mótmælum í Pakistan, þar sem menn brenndu borða …
Myndir frá mótmælum í Pakistan, þar sem menn brenndu borða með myndum af forsætisráðherra Indlands sem og þjóðfána Indlands. AFP/Arif Ali

Eftir skelfilega hryðjuverkaárás í Kasmírhéraði í Indlandi í síðustu viku, þar sem 26 óbreyttir borgarar voru myrtir, hefur spennan á milli Indlands og Pakistans stóraukist. Þjóðirnar eru erkióvinir og búa báðar yfir fjölmennum herafla sem og kjarnorkuvopnum.

Í kjölfar árásarinnar hefur Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, rætt við tugi heimsleiðtoga og þá hafa diplómatar frá 100 sendiráðum í Nýju Delí verið kallaðir til fundar í utanríkisráðuneytinu.

Samkvæmt heimildum New York Times beinist þessi viðleitni hins vegar síður að því að draga úr spennu við Pakistan, heldur virðist Indland vera að undirbúa málflutning fyrir mögulegar hernaðaraðgerðir gegn nágranna sínum.

Dagblaðið New York Times greinir frá. 

Hafna aðild að árásinni

Hryðjuverkaárásin var í Pahal­gam, sem er vin­sælt ferðamanna­svæði í suður­hluta Kasmír-héraðsins, sem lýt­ur ind­verskri stjórn á meðan norður­hluti Kasmír til­heyr­ir Pakkist­an.

Að sögn vitna komu árás­ar­menn­irn­ir úr nær­liggj­andi skógi og skutu með sjálf­virk­um vopn­um. Þeir aðskildu karla frá kon­um og börn­um, og var karl­mönn­un­um skipað að fara með trú­ar­játn­ingu múslima. Þeir sem það gátu ekki voru tekn­ir af lífi.

Modi hét í ræðu á fimmtudag „þungum refsiaðgerðum“ og útrýmingu „athvarfa hryðjuverkamanna“, án þess þó að nefna Pakistan sérstaklega.

Pakistan hefur í gegnum tíðina stutt mikið við hryðjuverkasamtök en hafna allri aðild að þessari árás.

Kjarnorkuvopnaforðinn ekki „til sýnis“

Ind­versk stjórn­völd hafa aftur á móti kennt Pak­ist­an um árás­ina. Lög­regl­an hef­ur sagt að tveir árás­ar­menn­irn­ir séu pak­ist­ansk­ir rík­is­borg­arar og liðsmenn sam­tak­anna Lashk­ar-e-Taiba (LeT), sem eiga ræt­ur sín­ar að rekja til Pak­ist­ans.

Á fundum með diplómötum hafa Indverjar vísað í fyrri stuðning Pakistans við hryðjuverkahópa og nefnt tæknilegar sannanir, svo sem andlitsgreiningargögn, sem þeir segja tengja árásarmennina við pakistönsk stjórnvöld.

Skothríð hefur átt sér stað á landamærunum undanfarna daga á milli pakistanskra og indverskra hersveita en enn sem komið er hefur það ekki farið úr böndunum.

Um helgina varaði innviðaráðherra Pakistans, Hanif Abbasi, Indland við og minnti á að kjarnorkuvopnaforði Pakistans væri „ekki til sýnis.“ 

Þá tók hann fram að langdrægum eldflaugum Pakistans, sem bera kjarnorkusprengjurnar, væri öllum „miðað á Indland.“

Narendra Modi.
Narendra Modi. AFP/Saijad Hussain

Hörð viðbrögð við árásinni

Viðbrögð Ind­lands við árás­inni hafa verið hörð. Ind­land ætl­ar tíma­bundið að segja upp vatnsaðstoðarsamn­ingi frá 1960, sem fel­ur í sér gagn­kvæma aðstoð ná­granna­ríkj­anna við að halda úti neyðar­vatns­birgðum á Himalaja­svæðinu.

Einnig verður stærsta landa­mæra­hliðinu milli Ind­lands og Pak­ist­ans lokað og öll­um pakistönsk­um rík­is­borg­ur­um gert að yf­ir­gefa Ind­land fyr­ir 29. apríl, að und­an­skild­um diplómöt­um.

Pak­ist­an hef­ur svarað aðgerðunum í sömu mynt. Verður ind­versk­um diplómöt­um vísað úr landi og vega­bréfs­árit­an­ir fyr­ir ind­verska rík­is­borg­ara aft­ur­kallaðar.

Þá hef­ur Pak­ist­an einnig lokað loft­helgi sinni fyr­ir ind­versk flug og sagt að ef Ind­land reyni að stöðva vatns­flæði neyðar­vatns­birgða verði litið á það sem „stríðsaðgerð“ sem verði svarað af full­um þunga.

Mótmæli gegn Indlandi hafa blossað upp víða í Pakistan.
Mótmæli gegn Indlandi hafa blossað upp víða í Pakistan. AFP/Arif Ali

Allsherjar stríð ólíklegt

Stigmögnun milli Indlands og Pakistans veldur þjóðarleiðtogum mörgum áhyggjum. Þrátt fyrir að Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hafi hvatt til stillingar, virðist Indland líta á stuðningsyfirlýsingar margra ríkja sem grænt ljós fyrir hörð viðbrögð.

Ríkisstjórn Donalds Trump heitir áfram stuðningi við baráttu Indlands gegn hryðjuverkum, þó óljóst sé hversu djúpt Bandaríkin hyggist blanda sér í málið að þessu sinni.

Að sögn Daniel Markey, sérfræðings við Johns Hopkins-háskóla, bendir margt til þess að Indland íhugi „einhvers konar stórvirka” hernaðaraðgerð. Pakistan hefur á móti heitið því að bregðast við slíkum aðgerðum af enn meiri hörku.

Shiv Shankar Menon, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi í Indlandi, telur þó ólíklegt að deilurnar þróist út í allsherjar stríð.

„Þau [ríkin] eru bæði nokkuð sátt við ástand stjórnaðrar óvildar,“ sagði hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert