Lögregla: Atvikið í Vancouver „ekki hryðjuverk“

Fjöldi fólks er lát­inn eft­ir að bíl var ekið á mannþvögu á götu­hátíð í Vancou­ver í Kan­ada í nótt. Lögreglu grunar ekki að atvikið hafi verið hryðjuverk.

Þrítug­ur ökumaður er í varðhaldi vegna máls­ins að sögn yf­ir­valda. Lögregluyfirvöld segjast kannast við hann frá fyrri málum.

„Á þessum tímapunkti erum við sannfærð um að þetta hafi ekki verið hryðjuverk,“ skrifar lögreglan á X.

Ná­kvæm­ur fjöldi fórn­ar­lamba ligg­ur ekki fyr­ir en lög­regl­an í Vancou­ver sagði að „fjöldi fólks“ hefði látið lífið og „marg­ir aðrir“ særst eft­ir að ökumaðurinn ók inn í fólks­fjölda á götu­hátíð við Fraser-stræti upp úr kl. 20 að staðartíma (3 að ís­lensk­um tíma).

„Lík út um allt“

At­vikið átti sér stað á Lapu Lapu-hátíðinni í Vancou­ver, sem er haldin árlega af Flippseyingum um víða veröld til heiðurs samnefndri frels­is­hetj­u sem sigraði Spán­verja í orr­ust­unni við Mact­an árið 1521.

Fjölskylduhátíðin var við það að ljúka þegar svörtum jepplingi var skyndilega ekið inn í miðja þvöguna. Á ljósmyndum af vettvangi sem eru í dreifingu á samfélagsmiðlum má sjá að framhlið bílsins er gjörónýt eftir atvikið. Aðrar myndir sýna lík á víð og dreif um svæðið. 

Staðarmiðillinn Vancouver Sun ræddi við Abigail Andiso, sem var ásamt vinum sínum í nágreninu er hún heyrði tvo hvelli, og síðan öskur.

Þegar Andiso hljóp í átt að hávaðanum blasti hryllingur við. „Það voru lík á götunni. Það hafði verið keyrt yfir þau,“ segir hún. „Sumir voru þegar dánir á staðnum.“

Yoseb Vardeh, sem rak matarvagn á svæðinu meðan á hátíðinni stóð, segir við Postmedia að dagurinn hafði verið „ótrúlegur“ fram að þessu. Hann lýsir því að hann hafi heyrt í ökumanninum gefa í. 

„Og svo lít ég upp og sé fólk fljúga,“ er haft eftir honum. „Ég fer út úr matarvagninum, ég lít niður veginn og það eru bara lík út um allt.“

„Við syrgj­um öll með ykk­ur“

Ken Sim, borg­ar­stjóri Vancou­ver, seg­ist á X vera sleg­inn yfir at­vik­inu. For­sæt­is­ráðherra lands­ins er einnig harmi sleg­inn.

„Ég er miður mín við að heyra af hræðilega at­b­urðinum á Lapu Lapu-hátíðinni í Vancou­ver,“ skrif­ar Mark Car­ney, for­sæt­is­ráðherra Kan­ada, á X.

„Við syrgj­um öll með ykk­ur,“ bæt­ir ráðherr­ann við.

Svipuð árás átti ný­lega sér stað í New Or­le­ans í Banda­ríkj­un­um í byrj­un janú­ar, þegar 15 lét­ust er maður ók pall­bíl í gegn­um mann­fjölda í Bour­bon-stræti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert