Kína hefur hvatt Indland og Pakistan til að sýna stillingu í átökum sínum í Kasmír-héraði. Spennan á milli landanna hefur aukist til muna í kjölfar hryðjuverkaárásar þar sem 26 manns létu lífið í héraðinu.
Þetta segir Guo Jiakun, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins.
Ummælin koma í kjölfar þess að indverski herinn greindi frá skothríð á milli hermanna Indlands og Pakistan í héraðinu og er það fjórða daginn í röð sem til átaka kemur.
„Kína vonast til þess að báðir aðilar sýni stillingu, mætist á miðri leið, taki á viðkomandi ágreiningi með samræðum og samráði og viðhaldi sameiginlegum friði og stöðugleika á svæðinu,“ segir Jiakun.
Hryðjuverkaárásin var í Pahalgam, sem er vinsælt ferðamannasvæði í suðurhluta Kasmír-héraðsins, sem lýtur indverskri stjórn á meðan norðurhluti Kasmír tilheyrir Pakistan.
Að sögn vitna komu árásarmennirnir úr nærliggjandi skógi og skutu með sjálfvirkum vopnum. Þeir aðskildu karla frá konum og börnum, og var karlmönnunum skipað að fara með trúarjátningu múslima. Þeir sem það gátu ekki voru teknir af lífi.
Indversk stjórnvöld hafa kennt Pakistan um árásina, sem aftur á móti hefur hafnað ásökununum.
Spennan hefur aukist gríðarlega á milli landanna síðan árásin var gerð. Greint hefur verið frá að Indland virðist vera að undirbúa málflutning fyrir mögulegar hernaðaraðgerðir gegn nágranna sínum.
Þá hefur innviðaráðherra Pakistans, Hanif Abbasi, sagt að öllum langdrægum eldflaugum Pakistans, sem bera kjarnorkusprengjurnar, væri „miðað á Indland“.