Rakst á ferju og stakk af: Einn látinn

Áreksturinn átti sér stað í borginni Clearwater í Flórída.
Áreksturinn átti sér stað í borginni Clearwater í Flórída. AFP

Einn er látinn og fjölmargir alvarlega slasaðir eftir að bátur lenti í árekstri við ferju í borginni Clearwater í Flórída í gærkvöldi.

Breska ríkisútvarpið greinir frá.

Tveir fluttir með þyrlu á sjúkrahús

Fram kemur að 45 manns hafi verið um borð í ferjunni, þar á meðal tveir skipverjar, þegar áreksturinn varð. Sá sem stýrði bátnum reyndi síðan að stinga af en lögreglan hafði hins vegar uppi á bátnum. 

Allir hinna slösuðu voru um borð í ferjunni. Tveir þeirra voru fluttir með þyrlu á sjúkrahús.

Málið er í rannsókn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert