Um 30 prósent Íslendinga hafa miklar áhyggjur af því að tollar sem Bandaríkjastjórn er að leggja á hafi neikvæð áhrif á lífskjör á Íslandi, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Maskínu.
Um 7 prósent hafa mjög miklar áhyggjur á meðan 22,5 prósent hafa fremur miklar áhyggjur. Flestir hafa í meðallagi áhyggjur af tollum Trumps, eða um 37,8 prósent. 3,8 prósent hafa engar áhyggjur.
Konur hafa töluvert meiri áhyggjur en karlar, en um 34,4 prósent kvenna hafa miklar áhyggjur eða fremur miklar á meðan aðeins 25,3 prósent karla hafa sömu áhyggjur.
Þá hafa kjósendur Vinstri grænna áberandi mestar áhyggjur af því að tollarnir muni hafa neikvæð áhrif á lífskjör á Íslandi, en um 42,7 þeirra sem svöruðu hafa mjög miklar eða fremur miklar áhyggjur. Kjósendur Miðflokksins hafa hins vegar minnstar áhyggjur, en aðeins 14,3 prósent hafa sömu áhyggjur.
Könnunin fór fram dagana 11. til 22. apríl 2025 og voru svarendur 1.616 talsins.