Bílaframleiðendur fá undanþágur frá tollum

Trump hefur lagt 25% toll á alla innflutta bíla, og …
Trump hefur lagt 25% toll á alla innflutta bíla, og framleiðendur eru ekki sáttir. AFP/Mandel Ngan

Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði í dag undir forsetatilskipun sem á að koma til móts við bílaframleiðendur í landinu, sem kvarta sáran undan 25% tollum á alla innflutta bíla.

Ford, General Motors og fleiri bandarískir framleiðendur kváðust afar ósáttir við bílatolla Trumps. Að þeirra sögn myndi það stórauka kostnað fyrirtækjanna að færa framleiðslu til Bandaríkjanna og draga úr hagnaði.

Trump hefur nú gert þær breytingar að bílaframleiðendur séu undanskildir frá öðrum tollum, t.d. á stáli og áli, sem Trump lagði einnig á nýlega. New York Times greinir frá þessu.

Bílatollarnir standa þó enn óbreyttir í 25%. Bílaframleiðendur geta jafnframt sótt um tollaundanþágur til að mæta kostnaði á öðrum innfluttum vörum næstu tvö árin.

Trump sagði við blaðamenn í dag að hann vildi hjálpa bílaframleiðendum að „njóta þessarar litlu breytinga, tímabundið“.

„Ef þeir geta ekki fengið varahluti, viljum við ekki refsa þeim,“ sagði hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert