Einstaklega heimskuleg ákvörðun

Tréð fræga sem hefur m.a. verið kennt við ævintýrið um …
Tréð fræga sem hefur m.a. verið kennt við ævintýrið um Hróa Hött en það var bakgrunnur í frægri kvikmynd frá árinu 1991, þar sem leikarinn Kevin Costner lék kappann fræga. AFP

Réttarhöld eru hafin í máli tveggja manna sem eru ákærðir fyrir að fella heimsfrægt tré sem stóð við svokallað Sycamore-skarð í Norðymbralandi á Englandi. Tréð, sem var forn garðahlynur, hefur verið kallað Hróa Hattar-tréð.

Tréð, sem var í eigu breska náttúruverndarráðsins National Trust, fannst liggjandi við Hadríanusarmúrinn í september 2023.

Tjónið metið á rúmar 100 milljónir

Þeir Daniel Graham, sem er 39 ára, og Adam Carruthers, sem er 32 ára, eru ákærðir í málinu. Þeir eru sakaðir um að hafa valdið skemmdum sem nema 622.191 pundi. Það jafngildir um 106 milljónum króna, að því er segir í umfjöllun um málið á vef breska ríkisútvarpsins.

Þeir eru enn fremur sakaðir um að hafa skemmt múrinn sem er frá tímum Rómarveldis og er auk þess á heimsminjaskrá UNESCO. Tjónið er metið á 1.144 pund, eða sem jafngildir um 195.000 kr.

Tilgangslaust skemmdarverk

Ákæruvaldið sagði við upphaf réttarhaldanna í dag að ákvörðun mannanna hefði verið einstaklega heimskuleg. Þeir hafi einfaldlega ætlað að fremja tilgangslaust skemmdarverk. Svo kom í ljós að mennirnir geymdu hluta trésins hjá sér sem eins konar verðlaunagrip.

Mennirnir neita sök. Reiknað er með að aðalmeðferðin, sem fer fram við héraðsdóm í Newcastle, muni standa yfir í tíu daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert