Fólk sagt látið eftir skotárás í Uppsölum

Skotárásin er til rannsóknar. Engin andlát hafa verið staðfest.
Skotárásin er til rannsóknar. Engin andlát hafa verið staðfest. Skjáskot af SVT

Stór lögregluaðgerð er nú í gangi nærri Vaksala-torgi í miðborg Uppsala eftir að tilkynningar bárust um skothvelli í hverfinu. Þetta kemur fram á SVT. Óstaðfestar fregnir herma að nokkrir hafi látið lífið af völdum skotsára.

Gerandinn er sagður hafa flúið af vettvangi á rafmagnshlaupahjóli.

Lögreglan hefur lokað stóru svæði í miðborginni. Fjöldi vitna hefur lýst háværum skothvellum að sögn upplýsingafulltrúa lögreglunnar.

Vitni á vettvangi lýsa atburðunum sem skelfilegum.

„Ég heyrði fimm skot. Síðan sá ég fólk hlaupa í allar áttir og fela sig,“ segir nafnlaust vitni í samtali við SVT.

Lögregla vinnur nú að því að tryggja öryggi á svæðinu. Ekki hefur verið gefið út hversu margir eru látnir eða særðir.

Skotárásin við hárgreiðslustofu 

Á vef BBC er segir að skotárásin hafi verið við hárgreiðslustofu og að talsverður fjöldi hafi verið á svæðinu í tilefni af vorhátíð. 

Fréttin hefur verið uppfærð 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert