Frjálslyndi flokkurinn sigurvegari kosninganna

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada og formaður Frjálslynda flokksins, fagnar sigrinum.
Mark Carney, forsætisráðherra Kanada og formaður Frjálslynda flokksins, fagnar sigrinum. AFP

Frjálslyndi flokkurinn undir stjórn Mark Carney forsætisráðherra bar sigur úr býtum í kanadísku þingkosningunum sem fram fóru í gær.

Búið er að telja 90 prósent atkvæða og það stefnir í að Frjálslyndi flokkurinn fái 165 þingsæti en Íhaldsflokkurinn 147. Til að ná meirihluta í þinginu þarf að ná 172 þingsætum en reiknað er með að lokatölur berist þegar líður á morguninn. Í kjölfarið kemur í ljós hvort Frjálslyndi flokkurinn geti myndað meirihlutastjórn eða hvort hann þurfi að treysta á einhvern af minni flokkunum til að mynda ríkisstjórn.

Trump er að reyna að brjóta okkur niður

Í sigurræðu sinni við stuðningsmenn sína sagði Carney:

„Trump Bandaríkjaforseti er að reyna að brjóta okkur niður svo Bandaríkin geti eignast okkur, það mun aldrei gerast. Ég mun gera mitt besta til að koma fram fyrir hönd allra Kanadamanna.“

Carney segist vilja leiða saman vinnuafl, atvinnulíf og borgaralegt samfélag í Kanada. Hann segir ætla að ræða við Trump á næstu dögum þar sem umræðuefnið verður framtíðarsamstarf landanna í viðskipta- og öryggismálum.

„Auðmýkt snýst um að viðurkenna að ein af skyldum stjórnvalda er að búa sig undir það versta,“ sagði Carney, sem tók við embætti forsætisráðherra af Justin Trudeau í síðasta mánuði. Til stóð að þingkosningarnar færu fram í október en Carney ákvað að flýta þeim.

Í aðdraganda kosninganna var samband Kanada og Bandaríkjanna helsta málið en andað hefur köldu á milli ríkjanna eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti innleiddi háa tolla á Kanada og nefndi það sem 51. ríki Bandaríkjanna.

„Við munum vinna þetta viðskiptastríð en við erum enn í áfalli af svikum Bandaríkjamanna,“ sagði Carney, sem fagnaði 60 ára afmæli sínu á dögunum. Hann starfaði áður sem seðlabankastjóri Kanada á árunum 2008 til 2014 og var bankastjóri Englandsbanka árin 2013 til 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert