Rafmagn komið aftur á flestum stöðum á Spáni og Portúgal

Ferðamenn liggja á gólfinu á Atocha-lestarstöðinni í Madrid á Spáni.
Ferðamenn liggja á gólfinu á Atocha-lestarstöðinni í Madrid á Spáni. AFP

Eftir víðtækt rafmagnsleysi á Spáni og í Portúgal í gær er rafmagnið komið aftur á meira en 99 prósent af meginlandi Spánar og 95 prósent í Portúgal.

Spænska innanríkisráðuneytið lýsti yfir neyðarástandi á Spáni í gær vegna rafmagnsleysisins og er það enn í gildi en hægt og bítandi er lífið að færast í eðlilegt horf á Íberíuskaganum. 

Rafmagnsleysið lamaði stóran hluta Spánar, Portúgals og Suður-Frakklands og olli glundroða í samgöngu- og fjarskiptakerfum.

Pedro Sánhez, forsætisráðherra Spánar, segir í færslu á samfélagsmiðlunum X að eftir annasamt kvöld hafi 99% af orkuþörfinni verið mætt og að 100% aðveitustöðva samgönguneta hafi verið endurreist.

Sánhez segir að þjóðaröryggisráð landsins komi saman fyrir hádegi til að greina núverandi ástand.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert