Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa á ný sakað Ísrael um að fremja þjóðarmorð gegn Palestínumönnum á Gasasvæðinu með því að stökkva stórum hluta íbúanna á flótta og með því að skapa aðstæður sem eru ólífvænlegar fyrir almenna borgara.
Þetta kemur fram í ársskýrslu samtakanna sem birt var í dag.
Amnesty hafði áður sakað Ísrael um þjóðarmorð í desember 2024 í sérstakri rannsóknarskýrslu sem samtökin unnu að.
Í ársskýrslunni segir að Ísrael hafi sýnt ásetning til að útrýma Palestínumönnum á Gasasvæðinu og beitt aðferðum sem uppfylli skilgreiningu á þjóðarmorði samkvæmt alþjóðalögum.
Að sögn Amnesty hafi um 1,9 milljónir manna, eða um 90% íbúa svæðisins, verið þvingaðir til að yfirgefa heimili sín.
Þá segir einnig í skýrslunni að eftir hrottafengna árás hryðjuverkasamtakanna Hamas á ísraelska borgara þann 7. október 2023, hafi heimurinn orðið vitni að „beinútvörpuðu þjóðarmorði“ af hálfu Ísraels.
Samkvæmt fréttaveitunni AFP létust 1.218 ísraelskir ríkisborgarar í árás Hamas, en síðan þá hafa að minnsta kosti 52.365 manns verið drepnir á Gasasvæðinu, samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á svæðinu.
Flóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínumenn, UNRWA, varar við því að börn og veikir einstaklingar séu í mestri hættu vegna skorts á mat, lyfjum og heilbrigðisþjónustu.
Talskona stofnunarinnar segir að hindranir Ísraels við að koma aðstoð inn á svæðið hafi orðið að hinum „þögla morðingja“ stríðsins.
Stofnunin hefur einnig sakað ísraelska herinn um að hafa beitt yfir fimmtíu starfsmenn stofnunarinnar illri meðferð í haldi. Þeir hafi verið lamdir og notaðir sem mannlegir skildir.
Ísrael hefur sakað suma starfsmenn UNRWA um tengsl við árás Hamas og í kjölfarið bannað stofnuninni að starfa innan landamæra Ísraels.
Amnesty lýsir einnig áhyggjum af aðgerðum Ísraels á hernumdu svæðum Vesturbakkans. Samtökin saka Ísrael um að beita þar kerfisbundinni aðskilnaðarstefnu sem hafi orðið sífellt ofbeldisfyllri, meðal annars með ólögmætum aftökum og ríkisstuddum árásum ísraelskra landtökumanna á óbreytta palestínska borgara.