Segir innrás Indverja yfirvofandi

Indverskir hermenn gæta hér öryggis í Srinagar, helstu borg Kasmír-héraðs, …
Indverskir hermenn gæta hér öryggis í Srinagar, helstu borg Kasmír-héraðs, en mikil spenna ríkir nú í héraðinu. AFP/Tauseef Mustafa

Varnarmálaráðherra Pakistans, Khawaja Muhammad Asif, sagði í fyrrakvöld að innrás indverska hersins í Pakistan væri nú „yfirvofandi“, en spenna hefur aukist mjög á milli ríkjanna tveggja eftir hryðjuverkið í Kasmír-héraði í síðustu viku, þar sem 26 ferðamenn voru drepnir af hryðjuverkamönnum.

Indversk stjórnvöld hafa sakað Pakistana um að hafa staðið að baki ódæðinu, en stjórnvöld þar hafa neitað öllum ásökunum. Ríkin tvö gera bæði tilkall til Kasmír-héraðs og hafa háð stríð í tvígang um yfirráð í héraðinu.

Asif sagði í viðtali við fréttastofu Reuters í fyrrakvöld að herinn hefði sent liðsstyrk til landamæranna, þar sem innrás Indverja væri nú yfirvofandi. Þá hefði þurft að taka nokkrar „strategískar“ ákvarðanir vegna spennuástandsins. 

Indland og Pakistan búa bæði yfir kjarnorkuvopnum, en Asif sagði að Pakistanar myndu einungis beita þeim ef bein ógn við tilveru ríkisins kæmi upp. Þá hefðu Pakistanar leitað til ýmissa bandamanna sinna og hvatt þá til þess að lægja öldurnar. 

Indversk stjórnvöld brugðust ekki við yfirlýsingum Asifs í gær, en forsætisráðherra Indlands, Narendra Modi, gaf fyrr í dag indverska hernum „frelsi til aðgerða“ til þess að bregðast við hryðjuverkinu í síðustu viku. 

Felur það í sér að yfirstjórn hersins fær að ákveða bæði hvenær og hvernig svar Indverja við árásinni verður sem og hvaða skotmörk verði fyrir valinu. Var ákvörðunin tekin á fundi Modis með helstu yfirmönnum hersins. 

Guterres ræðir við leiðtogana

Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hringdi í gær í bæði Modi og Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, og lýsti yfir áhyggjum sínum vegna spennuástandsins í samskiptum ríkjanna tveggja.

Sagði Guterres nauðsynlegt að forðast átök sem gætu haft hörmulegar afleiðingar í för með sér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert