Spánverjar útiloka netárás á raforkukerfið

Forsvarsmenn spænska raforkukerfisins útiloka að netárás hafi verið orsök víðtæks rafmagnsleysis sem olli meiriháttar truflunum fyrir milljónir manna á Íberíuskaganum í gær.

Spænsk yfirvöld reyna enn að komast til botns í málinu. Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, hefur biðlað til almennings að forðast að dreifa röngum og villandi upplýsingum um málið.

Fólk lenti í alls konar vandræðum í gær á Spáni …
Fólk lenti í alls konar vandræðum í gær á Spáni og í Portúgal eftir að rafmagninu sló út. Hér má sjá ferðalanga sem voru strandaglópar á lestarstöð í Sevilla á Spáni. AFP

Eduardo Prieto, sem er framkvæmdastjóri Red Electrica sem sér um flutningskerfi rafmagns í landinu, segir að samkvæmt þeirra greiningu þá sé hægt að útiloka netárás.

„Engin innbrot áttu sér stað í stjórnkerfum Red Electrica sem gætu hafa valdið atvikinu,“ bætti hann við á blaðamannafundi í dag.

Rafmagn hefur verið að komast smátt og smátt aftur á Spáni eftir sleitulausa vinnu í gær og í nótt. Prieto segir að raforkukerfið sé nú í jafnvægi og starfi á eðlilegan máta.

Margir brugðu á það ráð að leggja sig á gólfum …
Margir brugðu á það ráð að leggja sig á gólfum lestarstöðva. AFP

Segjast ekki hafa sent frá sér tilkynningu um óvenjulegt loftslagsfyrirbrigði

Talsmenn portúgalska raforkuflutningskerfisins REN neituðu í dag að hafa staðið að baki skilaboðum sem dreift var á samfélagsmiðlum þar sem fram kom að sjaldgæft loftslagsfyrirbrigði hefði valdið rafmagnsleysinu.

Í skilaboðunum, sem voru á portúgölsku, kom fram að bilun hefði orðið í spænska raforkukerfinu sem tengdist „óeðlilegum sveiflum sem mældust í háspennulínum (400 kV), sem væri fyrirbæri sem þekkt er sem loftknúinn titringur“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert