Mikill eldur blossaði upp í rafveitustöð í vesturhluta London í morgun og vinna 100 slökkviliðsmenn að því að ráða niðurlögum eldsins á Aberdeen Place í Maida Vale.
Þá kviknaði eldur í nærliggjandi í íbúðarhúsi en tilkynnt var um eldsvoðann klukkan hálf sex í morgun. Fimmtán slökkviliðsbílar komu á staðinn og hefur íbúum á nærliggjandi svæðum verið bent á að halda gluggum og hurðum lokuðum þar sem mikill reykur er á svæðinu.
Yfirmaður slökkviliðs- og björgunarstöðvarinnar, Paul Morgan, sem er á staðnum segir við Evening Standard að eldurinn sé mjög sýnilegur og mikill reykur. Óljóst er hvað olli eldsvoðanum en ekki hefur verið tilkynnt um slys á fólki en 80 hafa verið fluttir frá heimilum sínum.
massive blaze at London electrical substation with plumes of smoke seen for miles as 40 firefighters scrambled.
— 🅶🆂🆈 🅶🅸🆁🅻 🇬🇬 (@Gsy_Girl) April 29, 2025
And yet another substation caught fire yesterday in Ealing..!
What the fuck is going on? (Video is of Ealing) https://t.co/Od2qJveLDT pic.twitter.com/4E7Gs33daB