Þrír látnir í skotárás við hársnyrtistofu í Uppsölum

„Ég heyrði fimm skot. Síðan sá ég fólk hlaupa í …
„Ég heyrði fimm skot. Síðan sá ég fólk hlaupa í all­ar átt­ir og fela sig,“ seg­ir vitni. AFP

Að minnsta kosti þrír eru látnir eftir skotárás við hársnyrtistofu í Uppsölum í Svíþjóð fyrr í dag. Lögreglan leitar nú að byssumanninum, sem er sagður hafa flúið af vett­vangi á rafhlaupa­hjóli.

Lögreglan staðfestir að þrír séu látnir, samkvæmt umfjöllun sænska ríkisútvarpsins. Ekkert hef­ur verið gefið út um hversu marg­ir eru særðir.

Þrír eru látnir í skotárás í Uppsölum, staðfestir lögreglan.
Þrír eru látnir í skotárás í Uppsölum, staðfestir lögreglan. AFP

Fyrr í dag var greint frá stórri lög­regluaðgerð við Vaksala-torg í miðborg Upp­sala eft­ir að tilkynn­ing­ar bár­ust um skot­hvelli í hverf­inu upp úr klukkan 17 að staðartíma, eða 15 að íslenskum.

Skotárás­in tengist hársnyrtistofu við torgið, að sögn Aftonbladet.

Lög­regl­an hef­ur lokað stóru svæði í miðborg­inni. Fjöldi vitna hef­ur lýst há­vær­um skot­hvell­um að sögn upp­lýs­inga­full­trúa lög­regl­unn­ar.

Vitni á vett­vangi lýsa at­b­urðunum sem skelfi­leg­um. „Ég heyrði fimm skot. Síðan sá ég fólk hlaupa í all­ar átt­ir og fela sig,“ seg­ir ónafngreint vitni í sam­tali við SVT.

„Þetta er mjög alvarlegt atvik,“ hefur Aftonbladet eftir Magnus Jansson Klarin lögreglufulltrúa. Lög­regla vinn­ur nú að því að tryggja ör­yggi á svæðinu. 

Á morgun halda Svíar upp á Valborgarmessu, sem er haldin aðfarakvöld 1. maí til heiðurs heilagri Valborgu.

Sá sem hleypti af skotunum er sagður hafa flúið vettvang …
Sá sem hleypti af skotunum er sagður hafa flúið vettvang við Vaksala-torg á rafhlaupahjóli. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert